151. löggjafarþing — 36. fundur,  11. des. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[14:44]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Heilbrigðismál voru sá málaflokkur sem kjósendur vildu að við myndum setja í forgang. Það er afskaplega skrýtið að þessi ríkisstjórn er ekki tilbúin að hreinsa uppsafnaðan halla Landspítalans upp á tæpa 4 milljarða. Það hefur verið gert áður. Það var gert áður en þessi ríkisstjórn tók við. Árið 2017 var uppsafnaður halli hreinsaður. Þess vegna er mjög sérkennilegt að þessi ríkisstjórn vilji halda slíkum halla hangandi yfir Landspítalanum. Og hvað þýðir sá halli? Landspítalinn kynnti fyrir okkur hagræðingaraðgerðirnar. Það á að stytta innlagnir á kvenlækningadeild. Það á að draga úr ómunum á hjartarannsóknarstofu og það á að breyta geðendurhæfingardeildinni. Þetta eru 20 aðgerðir og því mun spítalinn finna fyrir. Það er stórmerkilegt og pólitísk tíðindi að ríkisstjórn sem segist vera að setja heilbrigðismál í forgang sé ekki tilbúin að taka þetta til baka því að ofan á þann halla sem spítalinn þarf að vinna upp er sérstök aðhaldskrafa sem ég þreytist seint á að minnast á, (Forseti hringir.) á heilbrigðiskerfið, sem er yfir 2 milljarðar. Á tímum Covid er það afskaplega sérkennilegt.