151. löggjafarþing — 36. fundur,  11. des. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[15:00]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég kem einnig hingað upp til að fagna þessum lið. Hér er verið að fjölga um 100 rými og ekki síst er hér tímabundið framlag til að fullt tillit sé tekið til breytinga á hjúkrunarþyngd. Það er mjög mikilvægt og mikið hefur verið kallað eftir því um allt land. Eins og við vitum hefur hjúkrunarþyngd vegna sjúklinga á hjúkrunarheimilum alltaf verið að aukast. Eins skiptir þetta líka máli við rekstur þessara heimila.