fjárlög 2021.
Virðulegur forseti. Samkvæmt eftirgrennslan minni og svörum við fyrirspurnum mínum þá er þetta sú tala sem þarf til að uppfylla lífskjarasamninga fyrir þá sem eru á framfærslu almannatrygginga. Það er einfaldlega verið að fara eftir almennum kjarasamningum í landinu fyrir það fólk sem er á framfærslulífeyri vegna almannatrygginga. Þessi tillaga nær yfir nokkur málefnasvið. Þetta er það fyrsta af þeim. Ég læt duga að koma bara hér upp í atkvæðaskýringu fyrir öll þau málefnasvið. Ég endurtek, þetta er lágmarkið til að uppfylla lífskjarasamningana.