búvörulög.
Herra forseti. Ég leyfi mér að koma upp í andsvar við hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og byrja þar sem hv. þingmaður endaði í sínu seinna andsvari: Hefur hv. þingmaður einhverja hugmynd um hve marga milljarða þarf til að taka úr ríkissjóði til þess að greiða toll með þessum hætti? Síðan vil ég bara segja vegna ræðu hennar, vegna þess að hún gerði að hluta til framsöguræðu mína að umtalsefni, að íslenskir bændur hafa enga minnimáttarkennd, þeir vilja bara sambærileg starfsskilyrði. Og ég blæs á það að hér sé enn og aftur verið að nota húsgagnarökin í þessu sambandi, eins og ég kalla svo.
Ég vil líka spyrja hv. þingmann sem var ráðherra þessa málaflokks í nokkra mánuði: Hvaða tillögur hafði hún uppi sem ríma við þann boðskap sem hún ber hér fram á borð? Ég verð að segja, virðulegur forseti, þó að það sé dónalegt og ég reyni að temja mér kurteisi, að hér var haldin ræða um ekki neitt og það er ekkert að frétta.