151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

atvinnuleysistryggingar.

300. mál
[11:19]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Við gerum breytingar á frumvarpinu sem lagt var fram, þannig að við það bætist málsgrein sem tekur utan um, skulum við segja, þriðja geirann. Það skiptir máli að þeir sem hafa verið í ráðningarsambandi en ekki komist inn í hlutabótaleiðina munu gera það með þeim breytingum sem við erum að gera hér. Það er afar mikilvægt og fagnaðarefni að þingið skuli einhenda sér í það.