búvörulög.
Herra forseti. Mér finnst oft gleymast í þessari umræðu sá fjöldi starfa sem er í landbúnaði í landinu, ekki bara bændur og búalið heldur afleidd störf í matvælaframleiðslu. Ég horfi til þeirra líka. Við búum við mikið atvinnuleysi núna. Ekki viljum við auka atvinnuleysi með því að fækka í þessari stétt. Mjög margir starfa í matvælaiðnaði í landinu og eiga allt sitt undir því að landbúnaður hér innan lands blómstri. Það skiptir máli. Samfylkingin talaði mikið um atvinnuleysi í síðasta máli þar sem við vorum að styrkja þá sem eru atvinnulausir. Ég bið Samfylkinguna að horfa til þeirra fjöldamörgu sem starfa í hliðargreinum í matvælaiðnaði við þessar aðstæður þegar verið er að tala niður að breyta fyrirkomulagi á úthlutun tollkvóta til hagsbóta fyrir landbúnað við þær erfiðu aðstæður sem við búum við núna. Ég bið Samfylkinguna að hugsa það aðeins lengra.