búvörulög.
Virðulegur forseti. Það er nefnilega hægt að fara aðrar leiðir til að styðja við íslenskan landbúnað, styðja við íslenska bændur og taka tillit til neytenda um leið en að fara leið ríkisstjórnarinnar sem er leið hafta og tollmúra sem hefur m.a. áhrif á verð matvælakörfunnar til íslenskra heimila. Þetta er ein leið og þess vegna leggjum við í Viðreisn þessa tillögu fram um að beina í auknum mæli beinum styrkjum til bænda og veita hæstv. landbúnaðarráðherra heimild til að semja við bændur eftir fyrir fram skýrðum reglum. Þetta er tillaga til að styðja beint við íslenska matvælaframleiðslu, styðja hana til skemmri og lengri tíma og ég hvet ykkur til þess að segja já við henni.