151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[20:21]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um úrelta fjármálaáætlun. Það er í rauninni búið að afgreiða fjárlög fyrir næsta ár og svo kemur ný fjármálaáætlun núna í apríl sem er fyrir árin eftir það. Í millitíðinni er ríkisstjórnin búin að tilkynna að hún ætli t.d. að fara í aukinn samdrátt í loftslagsmálum, upp í 55%. Það er ekki inni í þessari fjármálaáætlun t.d. þannig að þetta er voðalega tilgangslaus fjármálaáætlun þegar allt kemur til alls.