151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[20:37]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Sjö mögur ár já, vel nýtt. Þá hefur eitthvað gleymst að nefna sérstaklega síðasta ár, árið 2019, þar sem ríkisstjórnin var algjörlega búin að missa tökin á ríkisfjármálunum. Þá var 70 milljarða sveifla hjá hæstv. ríkisstjórn. 2019 var ósjálfbært ár hjá hæstv. ríkisstjórn sem hafði svona mikil tök á fjármálunum.

En hitt vil ég samt segja að það er ekki allt alslæmt. Við í Viðreisn höfum verið algerlega sammála því og stutt að það eigi að beita ríkissjóði við þessar aðstæður. Sem betur fer var búið að búa í haginn, það er alveg rétt, búið var að ná skuldum ríkisins niður þannig að við höfum sem betur fer haft tækifæri til þess en það var ekki vegna þess að ríkisfjármálin væru í svona góðu lagi hjá hæstv. ríkisstjórn.