fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál sem við erum að ræða hér 20 árum eftir að ég stóð í þessum stól og greiddi atkvæði með langþráðu fæðingarorlofi en þá ræddi ég einmitt að það væri draumurinn að fara með það upp í 12 mánuði eða jafnvel lengur. Ég er þeirrar skoðunar í dag að nú sé veruleikinn annar, að við þurfum að ganga lengra, bara út af fjölskyldumálum og aðstæðum, út af vinnumarkaði o.fl, en það er önnur saga. Stóra málið er, og ég tek undir það sem forsætisráðherra sagði áðan, að jafnréttismál eru ekki gæluverkefni. Það er ekki hægt að gera annað en að taka undir þau orð forsætisráðherra.
Ég verð hins vegar að segja að þessi tillaga um breytingu á skiptingu þar sem millifærslan er í rauninni aukin verður ávallt á kostnað frelsis konunnar. Ég tel þessa breytingu vera afturför. Mér finnst það einkennast af því að það hafi átt sér stað hér hrossakaup til að koma til móts við sjónarmið sem eru alkunna og alþekkt innan Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins. Það kemur ekkert á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki úthald í jafnréttismálum en þessi tillaga kemur mér verulega á óvart, að hún skuli koma frá Framsóknarflokknum sem stóð m.a. að því að setja fram framsýnu löggjöf sem við búum við í dag, en ekki síður af hálfu VG sem hefur forsætisráðherra sem kennir sig líka við jafnréttismál.
Þannig að ég vil spyrja hv. þingmann og flutningsmann þessarar tillögu hér: Hver er skoðun hans á jöfnum rétti á vinnumarkaði? Hver er skoðun hans á því hvaða áhrif þetta getur haft á stöðu kvenna (Forseti hringir.) á vinnumarkaði og ekki síður hvaða áhrif þetta mun hafa á kynbundinn launamun á vinnumarkaði, og hann er til staðar?