fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Ég ætla bara að lesa þá breytingu sem við erum að leggja til og þá túlkun sem við höfum fengið á henni. 3. mgr. 9. gr. verður svona ef breytingartillaga meiri hlutans verður samþykkt:
„Ef foreldri er gert að sæta nálgunarbanni gagnvart barni sínu, gagnvart hinu foreldrinu og/eða brottvísun af heimili og er af þeim völdum ófært um að annast barn sitt á fyrstu 24 mánuðunum eftir fæðingu þess færist sá réttur til fæðingarorlofs sem stofnast hefur til skv. 1. mgr. 8. gr. og foreldri hefur ekki þegar nýtt sér yfir til hins foreldrisins. Hið sama gildir þegar foreldri er ófært um að annast barn sitt af sömu ástæðum á fyrstu 24 mánuðunum eftir að barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Á þetta við hvort sem foreldrar fara sameiginlega með forsjá barnsins eða ekki. Lögreglustjóri eða dómstólar skulu staðfesta að foreldri muni sæta nálgunarbanni gagnvart barni sínu, gagnvart hinu foreldrinu og/eða brottvísun af heimili á fyrrgreindu tímabili. Við tilfærsluna verður réttur þess foreldris sem sætir nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili að þeim réttindum sem hitt foreldrið hefur áunnið sér samkvæmt lögum þessum.“
Þetta er álit þeirra lögfræðinga sem við höfum leitað til og þá erum við að komast að sömu niðurstöðu, tel ég vera, því að í breytingartillögu hv. þingmanns — ég næ ekki að fara yfir það en þetta ætti að vera samhljóða henni.