151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[14:52]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Viðbrögð hv. þingmanna við auknu frelsi eru athyglisverð. Sumum, eins og formanni Viðreisnar, finnst það ekki tímabært og öðrum, eins og hv. þm. Framsóknarflokksins, Silju Dögg Gunnarsdóttur, þykir það sorglegt. Sú afstaða, herra forseti, þykir mér sorgleg.