151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[15:03]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér dásamlegt mál, lengingu fæðingarorlofs, sem annað árið í röð er keyrt út í skurð rétt fyrir jól. Þetta kallaði ég Íslandsmet í aulagangi meiri hluta velferðarnefndar, sem það var í fyrra, en meiri hlutinn ákvað að bæta eigið Íslandsmet á þessu ári og stýrði málinu í fullkominn hnút, þessu frábæra máli. Ég segi bara eins og hæstv. forseti: Ég er tilbúinn að samþykkja skiptinguna óbreytta eins og hún kom frá ráðherra. Hún byggist á rökum en ekki pólitískum hrossakaupum. Til að bíta höfuðið af skömminni, eða kannski til að reyna við heimsmet í aulagangi, leggur nefndin síðan til að taka sénsinn á því að fæðingarorlof verði vopn í höndum ofbeldismanna með því að hunsa ábendingar hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur. Er það þorandi að ofbeldismenn geti notað fæðingarorlof á þolendur sína? Ég segi nei. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)