151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[15:13]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Með þessari breytingartillögu leggjum við til að það sé sameiginlegur réttur foreldra til orlofs í 12 mánuði og að sama skapi réttur þeirra til að skipta þeim mánuðum með sér eins og hentar þeim, fjölskyldu og barni best. Við treystum foreldrum til jafnréttis.