fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Þegar við getum talað um það jafnrétti karla og kvenna og annarra kynja á vinnumarkaði sem hæstv. ráðherra Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir talaði um áðan þá getum við talað um frelsi. Og ég er sammála því. Það er þess vegna sem ég segi nei. Ég vil ganga lengra og styð tillögu hæstv. félagsmálaráðherra. Það geri ég vegna þess að það er öllum börnum í landinu til framtíðar fyrir bestu að hér sé fullkomið jafnrétti. Já, hver er stóra myndin sem hæstv. forsætisráðherra talaði um? Hún er sú að við misstum af tækifæri til að ganga enn lengra, þótt vissulega sé þetta gott skref, og líklega vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn kúgaði hina tvo stjórnarflokkana til hlýðni. Ég mun leggjast yfir rauðu atkvæðin og atkvæði Vinstri grænna og Framsóknar á eftir (Forseti hringir.) og telja saman og sjá hvort við hefðum getað náð þessu jafnara.
(Forseti (SJS): Þingmaðurinn segir?)
Hann segir nei.