151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[15:55]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Virðulegur forseti. 9. gr. heimilar framsal í allmörgum tilvikum þar sem er ýmist ómöguleiki á að bæði foreldri geti tekið fæðingarorlofið eða aðrar ástæður. Eins og þingmanninum er kunnugt um þá hefur meiri hlutinn kallað til baka breytingartillögu við 3. mgr. 9. gr. Hann kallaði hana inn í nefndina á milli umræðna og munum við freista þess að ná lendingu í því máli við meðferð nefndarinnar.