búvörulög.
Virðulegur forseti. Ég styð þetta mál. Þetta er gott skref þó að við Framsóknarmenn teljum reyndar að gera þurfi betur og meira. Það þarf að taka á útfærslu á tollkvóta, taka á tollaeftirliti og taka fleiri verkefni eins og við lýstum yfir, ríkisstjórnin, við aðila vinnumarkaðarins fyrr í haust. Þau verkefni eru í gangi og undirbúningi hjá ríkisstjórninni.
En ég kem líka upp vegna umræðu sem var hér fyrr í kvöld af hálfu fyrrverandi kollega minna í ríkisstjórn, þáverandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Annan eins rakalausan þvætting og hreina lygi hef ég aldrei heyrt, aldrei. Þetta eru eftiráskýringar og tilraun til að búa til nýjan sannleika. (Forseti hringir.) Vilji menn taka þá umræðu þá þurfum við að hafa lengri tíma en síðasta dag fyrir jól, við 3. umr. um búvörulög.