búvörulög.
Virðulegi forseti. Ég greiði atkvæði gegn þessu máli af því að ég tel það ekki þjóna hagsmunum bænda. Ég tel það ekki þjóna hagsmunum neytenda eða samfélagsins, hvað þá þeirra heimila sem berjast nú í bökkum á erfiðum tímum því að eins og umsagnaraðilar hafa bent á; ASÍ, Neytendasamtökin og fleiri, mun matarkarfan hækka. Það hefur verið svolítið merkilegt að upplifa þessa samkeppni á milli íhaldsflokkanna hér um hver getur boðið best og mest í að hækka hér tollmúra í staðinn fyrir að leita annarra nútímalegri og eðlilegri lausna á grunni viðskiptafrelsis og neytendaverndar en ekki síst til þess að styðja raunverulega við íslenskan landbúnað.
Talandi um gleði jólanna og fleira, ég vil samt reyna að greina ákveðinn þráð á milli flokka hér um að við viljum öll styðja við íslenskan landbúnað. Förum með það heim, komum betur nestuð en með einhverjar gamaldags aðferðir til þess að standa vörð um landbúnaðinn okkar. Hann á betra og meira skilið. Það sama gildir um íslenska neytendur. (Forseti hringir.) En ég hvet til þess að við sameinumst um að styðja við íslenskan landbúnað með framtíðina að leiðarljósi.