samvinnufélög o.fl.
Virðulegur forseti. Rök mín eru þau að það sé óásættanlegt ef lögum er ekki fylgt. Ef við erum ekki búin að ná því markmiði sem sett var með lögum sem eru orðin tíu ára gömul eða meira er það auðvitað óásættanlegt. Þar af leiðandi er eðlilegt að bregðast við þannig að hægt sé að beita einhvers konar viðurlögum. Þá ætla ég að fara aftur í það sem ég nefndi áðan, að það væru tvenn rök fyrir því að ég styddi þetta mál. Eitt er að þegar við erum með lög þá er eðlilegt að þeim sé fylgt. Ef þeim er ekki fylgt þá er eðlilegt að við séum með einhver viðurlög við því til að þröngva fólki til að fylgja lögunum. Hv. þingmaður óttast að þetta gæti haft í för með sér einhvers konar fordóma gagnvart þeim konum sem þá tækju sæti í stjórnum. Þetta eru einmitt rök sem voru gegn frumvarpinu um að jafna hlut kynja í stjórnum fyrirtækja. Við konur sem einhverra hluta vegna yrðum valdar inn myndum gjalda þess og yrðum fyrir einhvers konar fordómum, að við værum bara í stjórn á (Forseti hringir.) þeim forsendum að við værum konur. Það er ekki alltaf gaman að vera í þeirri stöðu. En það eina sem gildir í því er að við þurfum þá (Forseti hringir.) bara að sanna okkur og sýna að við stöndum undir þeim verkefnum sem okkur eru falin.