samvinnufélög o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur svarið. Það eru kannski tvær spurningar sem sitja eftir. Eru fleiri lög sem hv. þingmaður hefur rannsakað þar sem sambærileg sektarákvæði vantar? Megum við eiga von á fleiri lagfæringum, ef svo má segja, frá hv. þingmanni, þar sem atvinnulífinu eru uppálagðar íþyngjandi kvaðir til að bregðast við slíkri vöntun? Síðan kannski bara til áréttingar ef hv. þingmaður hefur tíma: Þingmaðurinn sagði í andsvari að mikilvægustu útflutningsvörurnar í dag væru norðurslóðamál og jafnréttismál. Það er nú oft í ræðum sem stemningin hrífur fólk með. En er hv. þingmaður þeirrar skoðunar að norðurslóðamál og jafnréttismál, jafn mikilvæg og það er hvort tveggja, séu mikilvægari í dag en sjávarútvegur, orkan og náttúran?