þróunarsamvinna og háskólar Sameinuðu þjóðanna.
Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar, sem eru báðar góðar og málefnalegar. Ég ætla að reyna að fara yfir þær.
Varðandi það fyrra sem hv. þingmaður nefndi, þ.e. að stefna Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnu skapar heildarumgjörð um alla þróunarsamvinnu okkar, þá er lögð sérstök áhersla á að nýta íslenska sérþekkingu. Í gegnum stuðning okkar og samstarf við lykilstofnanir Sameinuðu þjóðanna í mannúðaraðstoð og í neyðarviðbrögðum leggur Ísland klárlega sín lóð á vogarskálarnar og hafa framlög okkar þar farið hækkandi. Jafnframt er Ísland aðili að Sendai-rammaáætluninni um áhættuminnkun vegna náttúruhamfara sem Sameinuðu þjóðirnar samþykktu í mars 2015.
Þá hefur utanríkisráðuneytið stutt Íslensku alþjóðabjörgunarsveitina á sviði rústabjörgunar og viðbragðs á náttúruhamfarasvæðum. Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin er aðili að regnhlífarsamtökum rústabjörgunarsveita innan Sameinuðu þjóðanna og er einnig á viðbragðslista Evrópusambandsins. Jafnframt eru sérfræðingar innan slysavarnafélagsins Landsbjargar á sérstökum viðbragðslista Sameinuðu þjóðanna tengdum náttúruhamförum.
Þá kemur náttúruvá einnig inn í þjálfun nemenda Jarðhitaskólans, sem fellur nú undir hatt GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu. Annars vegar tengist hún almennri þjálfun í jarðvísindum og hins vegar í byggingu orkumannvirkja, þar sem oft þarf að meta náttúruvá. Mætti t.d. skoða möguleika á sérstakri vettvangsþjálfun undir merkjum Jarðhitaskólans. Þegar litið er fram á veginn með tilliti til þess hvernig íslensk sérþekking og reynsla á sviði eldvirkni og jarðskjálfta geti nýst enn betur í íslenskri þróunarsamvinnu þá eru þar sannarlega tækifæri. Og bara til að nefna eitt þá væri hægt að skoða hvernig ráðgjafarlistar utanríkisráðuneytisins gætu nýst. Unnið hefur verið ötullega að því að byggja þessa lista upp, fyrst á sviði jarðhita og sjávarútvegs og nú á sviði landgræðslu, vatnsaflsvirkjana og jafnréttismála. Það er auðvitað alls ekki tæmandi.
Í seinna andsvarinu reyni ég að fara yfir hitt þar sem þingmaður spurði um.