stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé fyrir þetta fína andsvar. Ég hef einhvern veginn komið því þannig frá mér að hv. þingmaður virðist halda að ég sé bara að tala um sjávarauðlindina, ég hef þá kannski klikkað áðan þegar ég mundi ekki hvað ég ætlaði að segja. En það er alls ekki svo. Ég vildi bara leggja sérstaka áherslu á það hvað hún er okkur mikilvæg, akkúrat þessi auðlind, akkúrat núna. Hún er náttúrlega eitt af þremur eggjum í körfunni okkar og auðvitað er útflutningsgreinin okkar, ferðaiðnaðurinn, risastóra eggið í körfunni okkar. Við vitum það alveg. En ég var að segja að ég vildi tryggja þessa auðlind. Það hefði verið hægt að taka það fram núna. Þótt við séum ekki alltaf að breyta stjórnarskrá þá hefði alveg verið hægt að taka það sérstaklega fram núna, a.m.k. það sem við höfum og það sem við vitum að við erum með akkúrat núna, þ.e. sjávarauðlindin. Ég segi: Auðvitað eigum við að fullnýta og eiga jafnan rétt á rentum af öllum okkar sameiginlegu auðlindum. Það er alveg sama hvaða nöfnum þær kunna að nefnast, en það breytir ekki þeirri staðreynd að mér er mjög umhugað um sjávarauðlindina og mér finnst hún í rauninni ekki hafa skilað þeim rentum og þeim arði til eigenda sinna sem ég vildi séð hafa. Ég vona að þetta svari hv. þingmanni einhvern veginn, a.m.k. nóg til þess að hann átti sig á því að ég er ekki alveg föst úti á sjó.