umræður um utanríkismál.
Virðulegi forseti. Ég fagna þeirri umræðu sem hér hefur átt sér stað. Ég hef reyndar oft talað fyrir því að við ræðum oftar um utanríkismál. Þess vegna er einstaklega ánægjulegt að næsti liður á dagskrá er líka um utanríkismál, um ágæta skýrslu hæstv. utanríkisráðherra um utanríkisviðskipti.
Ég ætla að mótmæla því, virðulegur forseti, að við meðhöndlum svo mikilvæg mál með þeim hætti að fara í einhvers konar samninga um að útdeila þingflokkum mjög takmörkuðum tíma til að ræða svo gríðarlega mikilvæg mál. Þannig ber til að Sjálfstæðisflokkurinn, sem er stærsti þingflokkurinn með 16 þingmenn, fær fimm mínútur, þingmenn utan flokka fá tvær mínútur og minnsti þingflokkurinn fær fjórar eða fimm mínútur.
Virðulegur forseti. Ég hef áður rætt það hér að mér finnst fara betur á því, þegar við ræðum skýrslur, og ég tala nú ekki um jafn mikilvæga skýrslu og fer í umræðu eftir, að við fylgjum bara þingsköpunum, leyfum þeim sem hafa áhuga og hafa eitthvað til málanna að leggja að koma inn í umræðuna og leyfum andsvör og förum í þessa umræðu, sem verður svo skemmtileg hér í þessum góða þingsal þegar vel liggur á okkur.