málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Við erum með tvískipt hlutverk hérna, þ.e. útlendingalögin og Útlendingastofnun stýra því hverjir fá stöðu í landinu. Síðan þegar viðkomandi einstaklingur er búinn að fá stöðu í landinu tekur félagsþjónustan við og aðstoðar þann einstakling við að aðlagast íslensku samfélagi, finna sér húsnæði, atvinnu, læra íslensku og taka þátt í samfélaginu. Það er það hlutverk sem lög um innflytjendamál, félagsmálaráðuneytið, lög um félagsþjónustu sveitarfélaga og þar af leiðandi Fjölmenningarsetur hafa. Þannig að það er í rauninni alveg skýr lína þarna á milli og ég sé það ekki fyrir mér að við gerum þá línu eitthvað óskýrari. Þá værum við farin að gera það sem hv. þm. Miðflokksins sagði áðan að þetta frumvarp myndi gera, þ.e. að blanda saman ólíkum hlutum. Ég sé það ekki fyrir mér að það muni gerast heldur er þetta algerlega skýrt að það eru lög um málefni útlendinga og dómsmálaráðuneytið fer með stöðu þessa fólks áður en það fær stöðu hér í landinu.