málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Mér hefur fundist fundarstjórn forseta í þessari umræðu hafa verið ágæt, sama hver það hefur verið sem hefur setið hér í forsetastóli, hvort sem það er núverandi forseti eða sá sem sat hér á undan. Mér hefur hins vegar fundist þessi umræða alveg einstaklega döpur. Við erum að ræða hér, virðulegi forseti, lítið einfalt mál sem snýr að því að þeir einstaklingar sem við sem samfélag erum búin að veita heimild til þess að koma og dvelja í íslensku samfélagi, hvort sem það eru kvótaflóttamenn eða hafa komið hér inn með öðrum hætti, eru búnir að fá heimild til að dvelja í íslensku samfélagi, fái hér samræmda þjónustu við það að aðlagast íslensku samfélagi, læra íslensku, læra um samfélagið okkar, aðstoð við að fá sér vinnu og fleira.
Virðulegur forseti. Þessu er síðan snúið öllu á hvolf sem einhvers konar útlendingaumræðu, um það hvort við séum að taka fleiri eða færri einstaklinga inn í landið. Ég skil bara vel að hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson dragi þessar ályktanir af málflutningi Miðflokksins vegna þess að ég geri það líka. (Forseti hringir.) Ég geri það líka og ég trúi ekki öðru en að það séu talsvert fleiri sem gera það. Þess vegna hefur mér fundist (Forseti hringir.) þessi umræða vera komin niður á þvílíkt lágt plan þegar verið er að ægja saman mörgum ólíkum atriðum og skömm sé Miðflokknum í því máli.