málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Ég hafði nú eiginlega tekið þá ákvörðun að koma ekki upp í þessari umræðu einfaldlega vegna þess að ég vil forðast eftir fremsta megni að hlusta á hjal Miðflokksins í þessum málaflokki, og reyndar mörgum öðrum líka, en sérstaklega þegar kemur að þessum málaflokki. Mig langaði til þess að þakka hæstv. félags- og barnamálaráðherra fyrir að koma hér upp og segja hið augljósa í þessu samtali og vil sömuleiðis taka undir með hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé varðandi það hvenær við greinum önd réttilega. En þessi nálgun, að skammast yfir því að fólk skuli benda á hið augljósa sem allir sjá og heyra og er beinlínis tilgangur þessa samtals af hálfu Miðflokksmanna, er ævintýraleg, eins og svo margt sem frá þeim kemur.