störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á að lýsa ánægju með bindisval hæstv. forseta á öskudeginum. En að öðru: Bitcoin-bólan bólgnar nú sem aldrei fyrr. En er þetta bóla? Margir töldu internetið bólu en sú bóla er alla vega orðin nauðsynlegur hluti af lífi mínu. Hvort sem Bitcoin reynist bóla eða ekki er alger óþarfi að stjórnvöld fari á taugum og vilji koma böndum yfir Bitcoin eða aðrar rafmyntir og banna þær. Eðlilegra er að við tryggjum skýran og einfaldan lagaramma utan um alla atvinnustarfsemi.
Í svari hæstv. fjármálaráðherra við fyrirspurn minni frá árinu 2018, á þskj. 1343, er svarað ágætlega eftirfarandi spurningum: Hefur ráðuneytið eða undirstofnanir þess skilgreint sérstaklega einkenni viðskipta með rafmyntir, svo sem Bitcoin? Hver er í megindráttum lagaumgjörð slíkra viðskipta, m.a. hvað skattframkvæmd og skatteftirlit varðar? Telur ráðherra ástæðu til að taka viðskipti með rafmyntir til nánari skoðunar?
Auðvitað eigum við að fylgjast grannt með þessari þróun. Ef einhverjar holur eru í lögum okkar þegar að rafmyntum kemur þarf að bregðast við því. En göngum ekki fram af hræðslu, boðum og bönnum eins og það sé okkar hér að stýra öllu sem gerist í samfélaginu.
Og hvað er það, virðulegur forseti, þegar talað er fyrir því að banna ætti námugröft eftir slíkum myntum vegna þess að það sé bara sóun á orku? Sóunin er alla vega ekki meiri en svo að rafmyntin Bitcoin hefur hækkað um 75% frá áramótum. Sóunin er ekki meiri en svo að hinn frægi frumkvöðull Elon Musk, stofnandi Teslu, hefur keypt myntina fyrir um 1,5 milljarða dollara og alla vega fimm fyrirtæki á Fortune 500 listanum hafa gert það sama. Sumir vilja alls ekki að orkan okkar sé nýtt í álframleiðslu. Þá væri sniðugt að nýta hana í gagnaver, við þurfum jú öll á stafrænum skýjum að halda. En eigum við allt í einu núna að segja: Nei, það má ekki grafa eftir rafeyri.
Forseti. Ég segi nei. Látum fólk og fyrirtæki í friði og treystum þeim til að gera það sem þau telja best, innan skýrs lagaramma.