greining leghálssýna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra kærlega fyrir svörin. Hún talar um að staðan hafi ekki verið góð. Mér sýnist í það minnsta að upptakturinn að þessum breytingum sé á sama stað. Staðan er ekki góð. Háværasta gagnrýnin heyrist frá heilbrigðisstéttinni sjálfri og frá konum. Sérfræðingar á sviðinu lýsa efasemdum, þeir gagnrýna og tala nú síðast um stórslys. Formaður Félags krabbameinslækna hefur sagt að rökum hæstv. ráðherra um flutning sýna til annars lands sé hafnað af öllum sem best til þekkja hvað varðar aðgengi og öryggi sýnanna. Þannig að ég spyr: Hvert er svar ráðherra við gagnrýni og viðvörunum sérfræðinga sem segja að greiningargetan sé til staðar hérlendis, sem hafna því að greiningarnar verði öruggari með þessum breytingum, sem segja að sýnin verði svo sannarlega ekki aðgengilegri og hafa áhyggjur af neikvæðum áhrif flutningsins á aðra þætti í rannsókna- og greiningarvinnu hérlendis? Mér finnst svörin hér í dag því miður vera ófullnægjandi. Ég held að það fari best á því að óska eftir skýrslu frá ráðherra um forsendur og áhrif þessa vinnulags, um þessar breytingar, með það að leiðarljósi að ná fram sátt og endurheimta traust og ég mun gera það, herra forseti.