151. löggjafarþing — 59. fundur,  24. feb. 2021.

störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegur forseti. Allt er breytingum háð en því miður ná ekki allar breytingar markmiði sínu. Nú er það svo að ein af þeim breytingum er viðvera og staðsetning dýralækna. Störf dýralækna eru fjölbreytt og starfsaðstæður misjafnar. Á suðurfjörðum Austfjarða, nánar tiltekið Breiðdal, Berufirði og Álftafirði, hefur verið við störf dýralæknir, svokallaður þjónustudýralæknir, sjálfstætt starfandi en hið opinbera greiðir bakvaktargreiðslur. Nú bregður svo við að frá og með nýliðnum áramótum hefur orðið breyting á. Sá dýralæknir sem hefur starfað á þessu tiltekna svæði lætur af störfum vegna aldurs eftir 44 ára starf og starfsstöðin verður flutt til Egilsstaða. Hingað til hafa tveir dýralæknar sinnt bakvöktum á starfssvæðinu en nú er um eina bakvakt að ræða. Starfssvæðið er frá Bakkafirði til Djúpavogs. Stóran hluta ársins er stysta leiðin á milli þessara staða 314 km og yfir marga fjallvegi að fara. Við bætast síðan alls konar útúrdúrar sem sannarlega eru mjög miklir. Einn dýralæknir á að sinna þessu svæði 128 tíma á viku. Þegar ákveðið var að breyta kerfinu á Austurlandi var það krafa ráðherra og skilyrði fyrir breytingum að ekki hlytist af því aukinn kostnaður. Eina svæðið þar sem verður skerðing á þjónustu við þær breytingar sem ákveðnar voru er Austurland.

Virðulegi forseti. Mikilvægt er að finna lausnir á svona málum. Við gerum þá kröfu til bænda að velferð dýra sé til fyrirmyndar en bjóðum síðan ekki upp á þá þjónustu sem bændur þurfa fyrir skepnur sínar. Horfum ekki bara á skjalið í tölvunni sem segir okkur að hægt sé að spara nokkrar milljónir, horfum á landfræðilegar staðreyndir sem segja okkur að búskapur er stundaður vítt og breitt um landið og veitum þá þjónustu sem þarf, þjónustu sem hægt er að framkvæma svo sómi sé að.