störf þingsins.
Herra forseti. Hvernig er Ísland í dag? Förum yfir fjóra punkta. Það tekur meðalforstjórann í Kauphöllinni tæplega einn og hálfan dag að vinna sér inn mánaðartekjur öryrkjans, eldri borgarans eða þess atvinnulausa. Rúmlega dagslaun forstjórans eiga að duga hinum í einn mánuð. Númer tvö: Ríkustu 10% Íslendinga eiga meira af hreinum eignum en restin af þjóðinni sem eru 90% landsmanna. Númer þrjú: Fjármagnstekjuskatturinn, sem er sá skattur sem hinir ríku greiða helst, er lægstur á Íslandi af öllum Norðurlöndunum. Og númer fjögur: Veiðileyfagjöldin, sem hinir stóru borga helst, lækkuðu um tæp 60% á þremur árum. Á sama tíma búa allt að 35.000 Íslendingar við fátækt samkvæmt Hagstofunni. Af þeim eru 10.000 börn, herra forseti. Á sama tíma hafa aldrei jafn margir þurft að sækja sér mataraðstoð á Íslandi. Þetta er fólk sem þarf jafnvel að neita sér um læknisaðstoð og getur ekki veitt börnum sínum þau gæði sem jafnöldrum þeirra þykja sjálfsögð. Þetta er fólk sem býr í vondum og jafnvel hættulegum húsum.
Herra forseti. Hér er því til fólk sem á allt og hér er til fólk sem á ekkert. Ættum við ekki í sameiningu að breyta þessu?