151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

verð á kolmunna og loðnu.

[13:05]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrirspurnina og efni hennar. Ég held að við séum þokkalega stöðugir menn í sinni og bregður ekki við mörg tíðindi sem eyrum okkar berast. En sá munur, sérstaklega í uppsjávarflotanum, sem liggur á milli verðs á þessum sameiginlegu fiskstofnum, sem eru kolmunni, síld og loðna, í mörgum tilfellum, hefur verið sláandi. Viðbragð ráðuneytisins í þessum efnum var að setja af stað sameiginlegt norrænt verkefni um verðmyndun í uppsjávarveiðum í Norður-Atlantshafi. Niðurstaða þess verks hefur ekki enn borist inn á mitt borð. Sá einstaklingur sem leiðir þetta verkefni heitir Daði Már Kristófersson. Hann er í forsvari fyrir sameiginlega vinnu norrænu ríkjanna á þessu sviði og vonandi kemur eitthvað út úr því. Ég hef heyrt ýmsar skýringar á þessu af hálfu íslenskra fyrirtækja, eins og hv. þingmaður hefur sömuleiðis hlýtt á. Þau leiða fram sín rök fyrir verðlagningunni og þessum mismun. Ég er ekki í færum frekar en einhver annar til að setjast í eitthvert dómarasæti yfir þeim mismun eða segja til um hvernig á honum stendur. Menn leiða bara fram sínar tölur, sínar röksemdir, við þekkjum það, hlutaskiptakerfi eru misjöfn eftir löndum o.s.frv. Þess vegna taldi ég það rétt í þeirri stöðu sem kom upp, eins og réttilega er getið í orðum hv. þingmanns, 2019, að reyna að ná yfir stærra svæði í þeim samanburði sem fara þyrfti fram og það væri gert á einhvern hlutlægan máta. En því miður hef ég ekki fengið niðurstöðu úr þeirri vinnu enn.