151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

barnalög.

11. mál
[12:55]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Mig langar til að koma hingað upp öðru sinni í kjölfar þeirra orða stjórnarþingmanna að til standi að fella þessa tillögu. Með því myndi ég segja að það dragi aðeins úr trúverðugleika orða manna um að það þurfi ekki að hafa af því áhyggjur að þetta nái í gegn. Það er ákvörðun að skilja þennan hóp eftir og ég myndi í því sambandi vilja minna á hæstv. félags- og barnamálaráðherra, sem mér hefur fundist tala þannig að aðdáunarvert er um hagsmuni barna, hann hefur talað fallega í þeim málaflokki, og um að kerfin eigi að geta talað saman. Þá er það nú samt að birtast hér í þingsalnum í dag að ríkisstjórnin sjálf getur ekki tala saman og talar um þennan hóp sem einhverjar afleiddar lagabreytingar sem sennilega munu fylgja með seinna meir.