barnalög.
Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að koma hingað upp til að segja að hér er um að ræða breytingartillögu minni hlutans sem er góð. Ég gef mér það eiginlega að það séu eiginlega allir sammála um að hún sé góð. Einhverra hluta vegna eru stjórnmálin á Íslandi enn þannig að meiri hlutinn, það er eitthvert náttúrulögmál, getur ekki samþykkt breytingartillögu sem kemur frá minni hlutanum þó að hún sé góð. Ég ætla ekki að fullyrða að það sé alltaf svo en hér er um mjög mikilvægt mál að ræða, mikilvægan hóp sem er skilinn eftir. En, já, verði ykkur að góðu að fella þessa góðu breytingartillögu.