151. löggjafarþing — 72. fundur,  23. mars 2021.

málefni fanga.

[13:20]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Bara til að árétta það þá er Afstaða, það mikilvæga félag, líka með sérstakan samning við félagsmálaráðuneytið sem er utan þess sérstaka framlags sem hér var nefnt, 25 milljónirnar, sem samþykktar voru til nokkurra félaga. Það er á lokametrunum að klára skiptingu framlagsins og verkefni. Ég held að við þurfum að gæta þess vel í hvað fjármunirnir fara til að þeir gagnist sem best þessum félögum fyrir fanga þegar þeir koma aftur úr fangelsunum. Öll sú vinna miðar að því að styðja við fanga sem afplána dóm og síðan að hjálpa þeim til að vera virkir samfélagsþegnar þegar þeir koma út, hvort sem þar koma að félagsvinir Rauða krossins, Vernd, Frú Ragnheiður, Afstaða eða annað starf sem lýtur að þessu. Við erum að reyna að finna út og leggja lokahönd á skiptinguna og hver verkefnin eru, þar sem þetta kom sem óvænt viðbót. En ég fagna þessu. Framlagið var sett inn í því skyni að efla stuðning við fanga að lokinni afplánun í samfélaginu. Það eru auðvitað fjölmörg stuðningsúrræði í þessum málaflokki. Umræðan hefur breyst ansi hratt til hins betra í þessum málaflokki, hvernig við ræðum þessi mál, hvað við gerum, hvernig við forgangsröðum o.s.frv. Það liggur líka verulega á að bæta umhverfi geðteymanna sem reynst hafa vel í fangelsunum við að hjálpa til við aðlögun og á lokametrum fangelsisvistarinnar og fleira, sem liggur í þeirri vinnu sem Tolli Morthens leiðir, en það ýmiss konar vinna sem lýtur að bataúrræðum og að ýta undir virkniúrræði fyrir fanga að lokinni afplánun.