málefni fanga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið. Hún sagði í upphafi ræðu sinnar að þetta væri á lokametrunum og fagna ég því mjög og geri þá ráð fyrir því að fréttir berist til tilheyrandi félaga á næstunni. Mig langar einnig að árétta að Afstaða nýtur ákveðinnar sérstöðu meðal þeirra mörgu góðu félaga sem sinna málefnum fanga og hún er sú að Afstaða er sprottin úr umhverfi fanganna sjálfra. Þess vegna treysta fangar Afstöðu oft betur en öðrum stofnunum, enda kemur kannski ekki mikið á óvart að fangar beri oft ekki mjög mikið traust til opinberra stofnana og þá sér í lagi ekki til dómsmálaráðuneytisins, með fullri virðingu fyrir því ráðuneyti, eða fangelsisyfirvalda, en það er kannski bara eðli fyrirbærisins sem við erum að tala um. Vegna þessarar sérstöðu er í raun og veru ótrúlega merkilegt að þetta félag hafi náð jafn góðum árangri og raun ber vitni án þess að vera fjármagnað. Það gleður mig að þessi viðhorfsbreyting sem hæstv. dómsmálaráðherra fjallaði um eigi sér stað og hafi átt sér stað síðastliðin ár. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra að lokum fyrir svarið og hvet hana til dáða í þessum efnum.