fjármálaáætlun 2022--2026.
Forseti. Í fjármálaáætlun leggja stjórnvöld fram stefnu sína til næstu fimm ára og í þessari fjármálaáætlun er einfaldlega endurgerð stefnan sem var samþykkt síðastliðinn desember. Það stendur á bls. 163: „… stefnumörkun málefnasviða er efnislega óbreytt.“ Hæstv. ráðherra segir að með stefnunni sé gert betur en áður en stefnan var samþykkt, fyrir áramót. Þá vorum við með hagspá sem sagði ýmislegt um verðbólguþróun og atvinnuþróun o.s.frv. og við gagnrýndum að hvergi sást í fjármálaáætlun að komið væri til móts við það atvinnuleysi sem var verið að spá, ekkert um það, ekki neitt. Hver er raunin? Staðan sýnir árangurinn. Við erum með 12% atvinnuleysi, 4% verðbólgu. Við erum með minni hagvöxt en búist var við áður en síðasta fjármálaáætlun var samþykkt. Við erum með meira atvinnuleysi en búist var við áður en síðasta fjármálaáætlun var samþykkt. Við erum með meiri verðbólgu en var áður en síðasta fjármálaáætlun var samþykkt og nú á að gera sömu fjármálaáætlun og samt búast við því að við gerum betur.
Ég skil ekki hvernig þetta virkar, virðulegi forseti. Ef við gerum betur með stefnunni en raunin er samt að atvinnuleysi er hærra, verðbólga er hærri, atvinnuleysið meira, minni hagvöxtur, hvernig nær þessi áætlun þá að raungera þá stefnu stjórnvalda að gera betur en hagspá segir? Því að staðan segir okkur að það hefur ekki tekist.