fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Mig langar til að tala ekki um sóttvarnir heldur fara frekar yfir breiðu línurnar með hæstv. forsætisráðherra. Þetta er síðasta fjármálaáætlunin sem ráðherra leggur fram á þessu kjörtímabili. Það hefur ekki gengið þrautalaust fyrir ríkisstjórnina að setja fram fjármálastefnu og áætlanir sem standast. Festa í stefnu opinberra fjármála verður seint arfleifð þessarar ríkisstjórnar. Vissulega er það svo að heimsfaraldur setti strik í reikninginn hjá ríkisstjórninni eins og okkur öllum, en það breytir ekki þeirri staðreynd að þegar árið 2019 stefndi í óefni í ríkisfjármálum. Um það ber ríkisreikningur ársins 2019 skýrt vitni þar sem var 70 milljarða sveifla til hins verra frá fjárlögum þess árs. Strax árið 2018 fórum við þingmenn Viðreisnar að benda á of bjartsýnar hagvaxtarforsendur, að ríkissjóður væri orðinn ósjálfbær á sama tíma og uppsöfnuð fjárfestingarþörf safnaðist saman. Strax og heimsfaraldur skall á kölluðum við ítrekað eftir því að það yrðu tekin stór skref strax, ekki eftir eitt ár heldur strax, til að koma heimilum og fyrirtækjum í gegnum þennan skafl, skapa vissu og fyrirsjáanleika.
Staðreyndin er sú að opinber fjárfesting dróst saman um 9,3% árið 2020 þannig að árið sem átti að nýta til framkvæmda, nýta til ákveðinnar viðspyrnu, varð í raun ár samdráttar. Ríkisstjórnin lofaði auknum útgjöldum og fjárfestingum í innviðum í fyrra, bæði í fjárlögum þess árs og í aukafjárlögum, en það virðist ekki hafa skilað sér í raunheima. Við höfum tekið umræðu um þetta hér áður í þessum sal við ýmsa hæstv. ráðherra ríkisstjórnarinnar en akkúrat núna þegar ég hef færi á að tala um fjármálaáætlun, þetta stefnuplagg ríkisstjórnarinnar til næstu ára, langar mig til að inna hæstv. forsætisráðherra eftir því hvaða leiðir hún sér færar til að fullvissa okkur um að fyrirheit um opinberar framkvæmdir verði að veruleika núna. Spurningin er raunverulega: (Forseti hringir.) Hvers vegna ætti almenningur núna að trúa þessu, trúa því að farið verði í þessar mikilvægu framkvæmdir? Ég ætla ekki að fara í einhver álitamál um hvaða framkvæmdir það eru (Forseti hringir.) heldur breiðu myndina sem ég tel áhugavert að fá hæstv. forsætisráðherra í samtal um.