151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[21:50]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og fagna því að að þetta sé allt saman í vinnslu. En ég vona að það muni ekki taka of langan tíma því að það þarf að koma þessum verkefnum af stað. Ég tek undir með hæstv. ráðherra um að það er mjög mikilvægt að vanda til verka og ekki bara ana út í eitthvað, og það er einmitt þess vegna sem ég spurði.

Í síðara andsvari ætla ég að færa mig yfir í sjávarútveginn, þ.e. stoðkerfi hans. Við sömu umræðu síðastliðið haust ræddi hv. þm. Oddný G. Harðardóttir við hæstv. ráðherra um stöðu Fiskistofu enda var þá boðuð umtalsverð lækkun upphæða til reksturs stofnunarinnar. Það kom nokkuð á óvart, ekki síst í ljósi þess að fyrir liggja skýrar tillögur um eflingu Fiskistofu og ef það á að gera það almennilega mun það hafa nokkurn kostnað í för með sér. Hæstv. ráðherra svaraði því til að það væri ekki ætlan ráðherra að skera niður fiskveiðieftirlitið og hefði aldrei verið hans ætlan.

Staðan er samt sem áður þannig að rekstur Fiskistofu er undirfjármagnaður í dag. Hefur stofnunin ítrekað lýst áhyggjum sínum af stöðunni og var hún rekin með tapi á síðasta ári. Í ofanálag hefur þingið og ráðuneyti verið að setja fleiri verkefni á stofnunina, því miður að því er virðist án þess að fjármagn til þeirra fylgi. Þá voru gerðar breytingar á svokölluðum AVS-sjóði sem rann saman við fyrrnefndan Matvælasjóð sem orðið hefur til þess að aðgengi stofnunarinnar að styrkjum hefur þrengst nokkuð.

Herra forseti. Ef ég les fyrirliggjandi áætlun rétt er ekki annað að sjá en að fram undan sé samdráttur hjá stofnuninni. Getur hæstv. ráðherra staðfest það? Hversu mikill er samdrátturinn? Erum við að tala um 2%? 5%? Hvað erum við að tala um? Hvernig sér ráðherra fyrir sér að stofnuninni verði gert kleift að sinna grunnverkefnum sínum í slíkum niðurskurði sem hún á nú þegar í vandræðum með að sinna eða, herra forseti, hvaða verkefnum sér hæstv. ráðherra fyrir sér að stofnunin eigi að sleppa?