151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:02]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Það er ánægjulegt að komið hefur fram í skoðanakönnunum að yfir 90% þjóðarinnar styðja þær aðgerðir sem farið hefur verið í í baráttunni við Covid-19 og styðja þar með aðgerðir þær sem heilbrigðisráðherra og þríeykið okkar góða hafa leitt síðasta ár. Við höfum saman í þessari baráttu komist þetta langt. Við erum fremst meðal þjóða í þessari baráttu og það skiptir miklu máli. Það gerist ekki af sjálfu sér. Það þarf að leiða þá vinnu. Þjóðin þarf að vera samstiga heilbrigðisyfirvöldum hverju sinni til að tryggja almenna lýðheilsu í landinu og lágmarka þann skaða sem þessi bölvuð veira veldur og það er okkur að takast. Nú erum við komin á lokametrana, að ég tel, og við þurfum að halda áfram að hafa úthald og sýna samstöðu á lokametrunum því að almannahagsmunir eiga að sjálfsögðu alltaf að ganga framar sérhagsmunum og lýðheilsu almennings má ekki vera ógnað. Út á þetta ganga sóttvarnalög.

Við sjáum fram á það að í lok þessarar viku verða 70 ára og eldri fullbólusettir. Það er verið að bólusetja framlínufólk okkar og í lok júní er stefnt á að allir verði bólusettir og ég vonast til að það gangi eftir. Ég ítreka að það er mikilvægt að löggjafinn komi þarna inn í og grípi til ráðstafana með heilbrigðisyfirvöldum þegar þarf að leita til löggjafans. Við megum ekki láta fámennan hjáróma hóp fara að villa okkur sýn í þessum málum. Við höfum getað gert þetta svona styrk saman og eigum ekki að fara að deila um keisarans skegg. (Forseti hringir.) Við erum að ná þessum árangri og við náðum honum saman og eigum að vera stolt af því sem þjóð. Okkur tókst þetta saman.