151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

endurskoðuð landsskipulagsstefna 2015--2026.

705. mál
[21:28]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að það sé einhver misskilningur hjá hv. þingmanni að hingað til hafi umhverfismat ekki tekið á loftslagsmálum, hvort sem horft er til umhverfismatsáætlana eða framkvæmda. Það er að sjálfsögðu eitt af því sem litið hefur verið til og það er eitt af því sem væntanlega hefur verið litið til við gerð samgönguáætlunar af því að hún er háð mati á umhverfisáhrifum áætlana. Hér er því ekki bara um leiðbeiningar Skipulagsstofnunar að ræða heldur er líka um það að ræða að umhverfismat áætlana taki til þessara þátta. Það sem ég vísaði til, og var kannski ekki nógu skýrt hjá mér áðan, þegar ég nefndi að skoða þyrfti sérstaklega reglugerðir sem byggja á lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana, er að þar þarf að fara í gegnum það nákvæmlega hvort ekki sé örugglega alls staðar vísað til mats á áhrifum á loftslag. Það er vinna sem er í gangi í ráðuneytinu og stendur yfir. Ég er auðvitað ekki sammála því að verið sé að hola innan úr því markmiði ríkisstjórnarinnar að meta áætlanir út frá loftslagsmarkmiðum. Það hefur verið gert í stórum málum og við erum t.d. með þessari stefnu að búa til skýrari umgjörð sem hægt er að horfa til í öðrum stefnum. Með landsskipulagsstefnu er verið að leggja línurnar fyrir aðrar stefnur eins og hér var nefnt, t.d. í samgöngumálum, rammaáætlun, kerfisáætlun og fleira.