loftferðir.
Herra forseti. Ég svara náttúrlega ekki fyrir hæstv. heilbrigðisráðherra en ég endurtek bara og hef eytt töluverðum tíma í að útskýra af hverju þetta frumvarp er lagt fram: Það er vegna hagsmuna almennings. Við vitum jú að núna þegar flutningar til landsins eru opnaðir með þeim hætti sem verið hefur núna í örfáa daga þá eykst álagið á allt kerfið. Hér er einfaldlega verið að leggja fram leið til að auðvelda heilbrigðisyfirvöldum á Íslandi og heilbrigðisþjónustunni á Íslandi, ekki flugrekendum heldur okkur hér heima, að standa sig við þá flug- og ferðaþjónustu sem hér er verið að opna fyrir. Það er ástæðan fyrir þessu frumvarpi. Ég gerði mjög vel grein fyrir þessu áðan og ætla ekki að endurtaka það hér.