151. löggjafarþing — 91. fundur,  6. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[13:43]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég styð þetta mál. Þetta er hið besta mál. Það varðar Fjölmenningarsetur. Þetta hefur ekkert með hælisleitendur að gera heldur að taka vel utan um þá flóttamenn sem eru hér á landi. Ég skrifaði undir nefndarálitið og ég styð málið. Kostnaðaráætlun lá fyrir. Þetta er ekkert stórmál, en þetta er mjög gott mál.