151. löggjafarþing — 91. fundur,  6. maí 2021.

framkvæmd EES-samningsins.

764. mál
[14:29]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og fagna því sérstaklega að forystumenn þeirra flokka sem vilja ganga í Evrópusambandið eru búnir að átta sig á því að við erum í tollabandalagi, að Evrópusambandið er tollabandalag og við getum ekki samið eins og við viljum ef við göngum inn í Evrópusambandið. Þá erum við búin að afsala okkur viðskiptafrelsinu. Það liggur alveg fyrir. (Gripið fram í.) Það er gott að það sé viðurkennt. Það er búið að kalla mig öllum illum nöfnum fyrir að hafa bent á þetta, bæði á samfélagsmiðlum og annars staðar af ESB-sinnum. Ég tel að sú stund sé liðin að maður sé kallaður — ég ætla ekki að fara yfir þau orð sem notuð hafa verið um þann sem hér stendur þegar hann hefur bent á að Evrópusambandið er tollabandalag og að við værum að afsala okkur viðskiptafrelsinu ef við gengjum þar inn. (ÞKG: Hvaða samninga …?)

Virðulegi forseti. Ég bið hv. þingmann að grípa ekki fram í vegna þess að hv. þingmaður misskilur ákveðna hluti hérna. Í fyrsta lagi er það skýrslan sem við gerðum, sem heitir Áfram gakk! Þar eru borin saman fríverslunarnet, annars vegar Evrópusambandsins og hins vegar EFTA og Íslands. Ef við tökum jarðarbúa þá erum við með mun fleiri jarðarbúa en Evrópusambandið, m.a. af því að við Íslendingar erum með fríverslunarsamband við Kína. Ef við berum þessi net saman, það sem við erum með í dag og síðan Evrópusambandsins, getum við aldrei komist að þeirri niðurstöðu að fríverslunarnet Evrópusambandsins sé betra. En það er ekki bara það, virðulegi forseti, heldur erum við líka með lægri tolla. Við erum með lægri tolla af því að við Sjálfstæðismenn beitum okkur fyrir því að lækka tolla. Við erum með 90% tollfrelsi en ef við værum í Evrópusambandinu væri það 27%. Áður en við felldum niður tollana vorum við samt sem áður með betra umhverfi hvað þetta varðar. Það kom fram í gögnum þegar við vorum að sækja um aðild að Evrópusambandinu að það myndi hafa slæm áhrif á samkeppnishæfni mikilvægustu útflutningsgreina okkar, og þá er ég vísa í sjávarútveginn og iðnaðinn, ef við færum þar inn vegna þess að þá myndu tollar hækka á þeim vörum sem við þurfum nauðsynlega (Forseti hringir.) til að stunda okkar framleiðslu. Varðandi fríverslunarsamningana þá munum við alltaf halda því áfram (Gripið fram í.) og á vegum EFTA, þar er ýmislegt sem við getum farið yfir á eftir.