151. löggjafarþing — 97. fundur,  18. maí 2021.

loftferðir.

613. mál
[14:37]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég vil bara þakka fyrir vinnslu þingsins á málinu. Við bentum á að það væri mögulegt stjórnskipulegt vafaefni þarna. 66. gr. stjórnarskrárinnar segir að ekki megi meina íslenskum ríkisborgara að koma til landsins sem var bara mjög ríkt álitaefni hvort þetta myndi fela í sér. Við sáum að það gæti ekki annað verið en að með þessari heimild til ráðherra væri hægt að meina Íslendingi að koma til landsins og ekki bara að það væri hægt heldur væri það orðin skylda flugfélaga að gera það að viðlögðum sektum og síðan hegningarlagaákvæðum ef því yrði viðhaldið. Eins og við bentum á í umræðunni er það náttúrlega til staðar að ef fólk uppfyllir ekki þessi skilyrði sem áfram verða inni þá er það bara handtekið og sett í sóttkví á Íslandi samkvæmt lögunum sem eru í gildi núna. En þú meinar íslenskum ríkisborgurum ekki að koma til landsins. Þetta var lagað þannig að okkur sýnist að þetta standist stjórnarskrána hvað það varðar og þökkum fyrir að loks var hlustað á þetta þannig að við gætum lent þessu í sátt.