151. löggjafarþing — 101. fundur,  26. maí 2021.

fiskeldi.

265. mál
[13:44]
Horfa

María Hjálmarsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við í Samfylkingunni verðum á gulu í dag í þessu máli. Það er engin ein stefna til fyrir fiskeldi sem atvinnugrein á Íslandi til framtíðar. Til eru alls konar stefnur þar sem fiskeldi kemur fyrir en engin stefna er til varðandi fiskeldi sérstaklega. Við verðum að vera með almennilega stefnumótun um hvernig atvinnugreinin á að vaxa. Hættum að bregðast við og láta stjórna okkur á forsendum greinarinnar.