fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Þetta er viðfangsefni sem hefur reynst okkur erfitt. Það er eins og heildarsýn á þennan markað hafi verið afar takmörkuð. Hv. þingmaður minntist á fréttaflutning. Undanfarin ár hefur verið reglulegur fréttaflutningur af því að starfsmenn Samtaka iðnaðarins setjist uppi í bíla og aki um og reyni að giska á, með því að horfa á byggingarstig, hvað sé í pípunum. Ég held að þetta sé akkúrat dæmi um að okkur hefur algerlega mistekist að horfa á heildarmynd og sjá hvað orsakar sveiflur á fasteignamarkaði. Auðvitað ætti það að liggja í augum uppi, myndi maður halda, miðað við það sem við vitum um hvað mörg börn fæðast og hversu stórir árgangar eru og hvernig þetta er allt saman, að menn gætu skipulagt þessa hluti betur. Það er alveg greinilegt að þar fer ekki alveg saman hljóð og mynd. Ef þetta blasir við, og ég dreg ekki í efa fréttirnar sem hv. þingmaður vísar til, er þá ekki svolítið sérkennilegt að stjórnvöld skuli á sama tíma, þegar þau vita vel samkvæmt þessu að það vantar íbúðir, grípa til aðgerða til að örva það að fólk fari inn á þennan markað sem getur ekki tekið við því? Það er auðvitað mjög slæm hagfræði. Hér ber ríkisstjórnin og stjórnvöld sem stýra þessum fjármálum fyrst og fremst ábyrgð. En ég dreg ekkert úr því heldur að auðvitað verða aðilar sem úthluta lóðum að standa sig í stykkinu. Það er alveg greinilegt að það hefur ekki verið eins og best verður á kosið.