151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[13:57]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég tek heils hugar undir orð hv. þingmanns og flokksbróður míns, Guðmundar Andra Thorssonar, um mikilvægi þess að þetta mál sé skoðað í víðara samhengi með tilliti til lýðræðis. Þó að það sé gott og rétt að verið sé að takmarka þann kostnað sem þingmenn geta fært inn sem starfskostnað þegar þeir þeysast um í kosningabaráttu, þá er ekki hægt annað en að horfa á þann mikla lýðræðishalla sem skapast þegar 11 ráðherrar geta notað digra sjóði ríkisins í kosningabaráttu fyrir þrjá stjórnarflokka. Ég held að það væri gott að spyrja samtök eins og Öldu – félag um sjálfbærni og lýðræði, sem er eini aðilinn sem skilar inn umsögn í þessu máli, út í lýðræðishallann sem þarna er og hvernig hægt er að bregðast við honum. Af því að ég tel að það sé alvarlegt þegar við lyftum svo mjög undir stjórnarflokka hverju sinni sem geta nýtt farartæki og ýmsan annan kostnað sér til hagsbóta.