151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:08]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er jákvætt að draga úr ferðakostnaði og jafna aðstöðu, en þetta mál gerir það ekki. Hér kemur hæstv. forseti Alþingis upp og staðfestir í rauninni að áhyggjur hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar og fleiri sem talað hafa hér eru á rökum reistar. Þegar hæstv. forseti segir að það verði gerðar ráðstafanir síðar þannig að þingmannahlutinn í starfi ráðherra muni ekki nýtast þeim til að ferðast um, hvernig í ósköpunum á að framkvæma það? Hvar endar þingmannahlutinn í starfi ráðherra og ráðherrahlutinn byrjar? Þetta er auðvitað algerlega óframkvæmanlegt. Á sem sagt að banna það að ráðherrar verði keyrðir í atkvæðagreiðslur á þinginu? Og svo er auðvitað algengt, eins og menn þekkja, að menn ferðist saman á bílum. Verður ráðherrum bannað í kosningabaráttu að taka farþega, taka með sér þingmenn sem eru í framboði, en mega samt engu að síður fara um allt land ef þeir geta búið til tilefni sem tengist ráðherrastarfinu, sem eru nánast allar ferðir sem hvort eð er væru farnar? Þetta er algerlega fráleitur frágangur á þessu máli og til þess ætlað að kasta ryki í augun á þingmönnum.