151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

752. mál
[22:30]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég velti fyrir mér: Var lagt eitthvert mat á það í nefndarstarfinu hvort til þyrfti að koma enn ein ný stofnunin með þriggja manna stjórn sem ráðherra skipar eða var ekki veginn og metinn sá möguleiki að þróa áfram núgildandi tryggingakerfi sem, eins og þingmaðurinn hv. kom inn á, dugði kannski skammt í hremmingum okkar nú nýverið?

Hér segir að í þessu felist aukin neytendavernd og það er gott mál. Hér segir líka að tryggingasjóðurinn muni greiða allar kröfur ferðamanna, óháð stöðu sjóðsins hverju sinni. En hver greiðir ef eitthvað vantar upp á? Eru það lántökur eða er það ríkissjóður?

Og aðeins varðandi það sem kemur hér fram um mat á áhrifum. Því er lýst í greinargerð með frumvarpinu að þetta muni hafa jákvæð áhrif á rekstur ferðaþjónustuaðila eða þeirra sem selja pakkaferðir. Og jafnvel er talað um að sú fjárhæð sem þessi fyrirtæki greiða í tryggingasjóðinn sé hugsanlega bara 10% af því sem að nú gerist. Getur hv. þingmaður metið hvaða áhrif þetta muni hafa á verðlagningu í ferðaþjónustu? Eru væntingar um að við fáum lægri fargjöld og betra og þægilegra viðmót þegar við leggjum land undir fót?