151. löggjafarþing — 110. fundur,  9. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[16:53]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil taka undir með öðrum þingmönnum sem hafa borið lof á forseta fyrir æðruleysi og sálarstyrk við þessar erfiðu aðstæður. En það er náttúrlega vart haldandi áfram fundi miðað við þær aðstæður sem hér eru komnar upp vegna þessara tæknilegu vandamála. Ég vil taka undir með hv. þingmönnum sem hafa ítrekað það og undirstrikað. Það stendur þannig á að við erum að ræða hérna afar mikilvægt mál og þetta er mál sem tengist mjög málatilbúnaði Miðflokksins á víðara sviði. Það hafa engir hér lagt meiri áherslu á baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi heldur en þingmenn Miðflokksins. Síðast af því máli er það að frétta að við lögðum fram mjög ítarlega skýrslubeiðni og væntum mikils af því sem lið í þessari baráttu. Ég hlýt að sjálfsögðu líka að taka undir með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um að það gengur ekki að eftirlitshlutverk Alþingis fái ekki notið sín (Forseti hringir.) og virki ekki sem skyldi. Það eru nú ýmsir úr forsætisnefnd viðstaddir og ég hvet þá til að beita sér fyrir því að þessum fundi verði frestað hið snarasta.